Posted by: hakonjohannesson | 5.7.2009

Af landsölumönnum – er allt á fullu á þeim bæ ?

Mikið er rætt um óreiðumenn og sumir velta fyrir sér hvað felist í því orði.

Ég hef haft mína meiningar um það og tel að í þeim flokki séu einstaklingar sem leggja hendur sínar á auðlindir landsins með það fyrir augum að koma þeim í hendur erlendra auðhringja og þar með í verð.  Fóðra eigin vasa með skammtímagróðanum og í leiðinni leyfa þeir nokkrum brauðmolum að detta af gnægtarborðinu til þess að sýna einstakt örlæti sitt og réttlæta herlegheitin.

Alveg eins og óreiðumenn bankanna sem sátu að digrum sjóðum,  deildu og drottnuðu, þá eru þessir einstaklingar alltaf í einstakri aðstöðu vegna starfs síns eða sambanda til að fremja landsölu af þessu tagi.

Vandamálið núna er að í augnablikinu hafa óreiðumennirnir ekki neina sjóði að leika sér með.  Því  hljóta þeir að gjóa hýrum augum að auðlindum lands og þjóðar. Eða allavega dreg ég þá ályktun af stöðunni.  Og tel ég að það verði engu eirt, enda verða menn jú að hafa í sig og á með einhverjum hætti.

Bendi hér í þessu samhengi á grein á Smugunni eftir Ingibjörgu Elsu Björnsdóttur  Þeir sem selja landið – Það eru ennþá til menn sem vilja selja auðlindirnar .

Þarna koma ýmsir punktar fram sem við öll þurfum að vera vakandi fyrir.

Nú, hér má sjá frétt af þeim snillingum, s.k. „haftamiðlurum” sem nýta sér til lífsviðurværis mismun á gengi krónunnar í Seðlabankanum annars vegar og í erlendum bönkum hins vegar.

Þetta eru “strangheiðarlegir” menn sem vinna innan laga og reglna – auðvitað; vandamálið er bara það að þetta eru einstaklingar sem dag hvern grafa undan stoðum þjóðarbúsins.

En eins og ég sagði óreiðumennirnir verða að hafa eitthvað að gera.


Leave a response

Your response:

Flokkar