Ég var að horfa á fréttir RÚV í tengslum við ESB aðildarmálin.
Undirliggjandi er fullkomin ringulreið á Alþingi og í mínum huga er ástæðan alveg skýr: Nefninlega sú að tímasetning þessar umræðu og hvað þá ákvarðatöku er ekki rétt.
Það þarf fyrst að afgreiða málefni Icesave klúðursins og hreinsa loftið af þeim ódaun sem af því leggur.
Það að blanda saman:
1. ESB aðildarumsókn og
2. Úrlausn Icesave
er engan vegin raunhæft í ljósi aðstæðna, en hér er um óskyld mál að ræða, sé nánar skoðað.
Það er heldur ekki sanngjarnt núna í því uppnámi sem skapast hefur.
Loks vil ég klekkja á eftirfarandi sem tengist þessu.
Yfirveguð ákvörðun um að ganga í þetta bandalag Evrópuþjóða verður aðeins tekin með stuðningi meirihluta þjóðarinnar.
Það er nefninlega okkar réttur og hann verður ekki gefinn eftir.
Ekki vegna einhliða ákvörðunar veruleikafirrtra stjórnmálamanna.