Posted by: hakonjohannesson | 28.11.2009

Silkihanskameðhöndlun hverra ?

Mikið er rætt um stórkostlegt verzlunarveldi Haga hf.  enda koma eigendur þar að nokkrum fjölmiðlum sem geta reglulega fjallað um þetta merka fyrirbæri.  Sjálfur stjórnaformaðurinn Jóhannes er reglulega í viðtölum í  fjölmiðlum sonar síns eða með blaðagreinar þar sem hann útskýrir sín sjónarmið á mannamáli.

Umræður um hugsanlegar afskriftir – og þar með silkihanskameðhöndlun – á tug-milljarða-skuld Haga hf. hafa verið mikið í fjölmiðlum undanfarið og sýnist sitt hverjum.  Umræddur stjórnarfomaður neitaði föðurlega í viðtali ríkisfjölmiðilsins RÚV fullyrðingum um að kröfurnar verði gefnar eftir.

Enda væri það mjög ósanngjarnt (og það veit líka verndari lítilmagnans) og klár mismunun þegna þessa lands – að  fella niður skuldir nokkurra útvalinna bissnessmanna – meðan að bláfátækir launaþrælar á VR taxta eru bornir út á götu í náttfötunum vegna vanskila nokkurra greiðsluseðla.  Eða er það ekki, annars  ?

En að kjarna málsins.

Tiltekin mismunun og yfirgangur “hins stóra” er orðin að “venju” og þykir sjálfsögð, þó að gjörningurinn standist ekki “raunveruleikapróf”.  Til að mynda prófið:  Er gjörningurinn sanngjarn og raunhæfur  ?

Börn eru handtekin hér á landi fyrir það að stela úr búðum.  ”Allur þjófnaður er tilkynntur til lögreglu” stendur á skiltum við inngang verzlana.  Það er nú orðin viðtekin venja að kæra þjófnað til lögreglu. Farið er með þau á lögreglustöð og þau yfirheyrð. Málið skráð og sent áfram.

Tekurðu eftir hörkunni. Börnin fá ekki neina silkihanskameðhöndlun.

Stjórnendur í verslun Hagkaups sem er í eigu umræddra Haga hf. gengu svo langt fyrir nokkru síðan að leggja fram ákæru með beiðni um refsingu á óvita sem tók matvöru að verðmæti 80 króna í búð þeirra og stakk í vasann.

Þú tekur eftir að ég nota ekki orðið stela eða þjófnaður.  Í þessu tilfelli var um óvitaverk að ræða. Það var ekki ásetningur að gera þetta hjá barninu, ekki hagnaðarvon augljóslega (80 krónur).  Barnið gerði þetta af óvitahætti, án umhugsunar, án þess að gera sér meðvitað grein fyrir atburðinum og afleiðingum.

Hagadrengir, með feðgana Jón og Jóhannes í fararbroddi ekki aðeins lögðu fram kæru – heldur og sérstaka beiðni um refsingu óvitans.

Hver er tilgangur þessara marg- margumræddu snillinga að biðja dómsmályfirvöld hér um sérstaka refsingu fyrir óvita þessa lands ? Þetta er í senn sérkennilegt og ósanngjarnt. Nánast níðingsháttur.

Þegar aðstandandi ræddi ítrekað við yfirstjórnendur voru þeir sérlega borubrattir og sannfærðir um ágæti þessa gjörnings.  Þetta gerðu þeir á sama tíma og sonur stjórnaformannsins gekk hér um göturnar á skilorði vegna hæstaréttardóms.  Hvers vegna að leggjast á viðskiptavini með þessum hætti og þá á börn í þessu tilfelli  - er með öllu óskiljanlegt.  Skildi nú vera að það sé einhver biturleiki í þessum gjörningi Hagamanna ?

Tek fram að ósk feðganna Jóns og Jóhannesar var ekki sinnt og málið fellt niður af fulltrúum dómsmála.


Responses

  1. Takk fyrir ljómandi grein! Á öllum bloggum og fréttamiðlum, sem ekki eru í eigu JJ og JÁJ, eru menn að tjá sig um málið og sýnist mér sem allir séu sammála um siðblinduna sem er að eiga sér stað hjá Arion ríkisbanka og vilja að yfirvöld sjái hvað sem er í gangi og komi í veg fyrir þennan siðblinda gjörning. Þjóðin er að öskra á yfirvöld, en ekkert virðist hafa breyst frá fyrri tíð, mál eru keyrð í gegn af yfirvöldum með lokuðum eyru vitandi vitandi til þess að við verðum búin að gleyma þessu nokkrum dögum seinna og byrjuð að hlusta á heilaþvott fjölmiðla Haga. Ég skora því á þjóðina að framkvæma áhrifameiri aðgerðir en blogg í þeirri von um að yfirvöld hlusti. Vetrar kveðja Jóhann

  2. Við erum orðin langþreytt á þessum seinagangi stjórnvalda sem ætluðu að hafa allt á yfirborðinu, gegnsætt og hvað eina. Eina vopnið sem við höfum er að versla ekki við þessa menn, en Íslendingar hafa aldrei verið góðir í því að mótmæla.

    Jólagjöfin í ár er að losna við Steingrím og Jóhönnu og koma Bónusfeðgum úr verslunarrekstri á Íslandi.

  3. Það er sorglegt að enn skulu sömu mennirnir sem mergsugu þjóðina og fyrirtækin sem þeir áttu, koma fram í fjölmiðlum og fullyrða að þeir einir séu hæfir til að reka þessi fyrirtæki.
    Í flestum öðrum löndum væru þessi viðtöl að eiga sér stað við handjárnaða menn bak við lás og slá.


Leave a response

Your response:

Flokkar